|
Í kvöldfréttum RÚV laugardaginn 11. febúar reyndi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að slá ryki í augu almennings til framgangs frumvarpi því sem hann hefur lagt fram til breytinga á barnalögum. Hélt ráðherrann því fram að aðeins 8% barna nytu ekki sameiginlegrar forsjár á Íslandi eftir skilnað foreldra, vandamálin væru því fá. Því væri lang best að foreldrar þessara 8% barna væru þvingaðir í sáttameðferð frekar en lögleidd væri heimild til dómara til þess að dæma þau til sameiginlegrar forsjár. Athyglisvert er að Ögmundur virðist ekki treysta dómurum á Íslandi til að dæma í forsjármálum, öfugt við það sem þekkist í löndunum í kringum Ísland. Af framlögðu frumvarpi má ætla að Ögmundur Jónasson sé mjög illa uppýstur um ástæður ágreiningsmála um börn og hver vandamálin eru þegar foreldrar ná ekki saman. Eftir skilnað foreldra hafa mæður lögheimil barnanna í 95% tilfella, feður í 2% og börn í fóstri eru um 3%. Sameiginleg forsjá skiptir því engu máli í framkvæmd þegar henni fylgir ekki lögheimilið, því lögheimilinu fylgja öll raunveruleg völd yfir barninu, þ.m.t. hvort umgengni fari fram eða ekki sem og allir peningarnir t.d. barnabætur húsaleigubætur o.s.frv. Tálmanaofbeldi er mjög algengt á Íslandi þrátt fyrir sameiginlega forsjá og flestar fjölskyldur þekkja til þess en stjórnvöld hafa algjörlega brugðist þegar kemur að réttindum þeirra barna og fjölskyldna sem þurfa að þola slíkt ofbeldi daglega og jafnvel árum saman. Í dæmalausu frumvarpi Ögmundar Jónassonar er gert ráð fyrir að felld verði úr gildi heimild til þess að taka barn með valdi frá lögheimilisforeldri og færa umgengnisforeldri ef lögheimilisforeldrið brýtur gegn umgengni barnsins. Þessi leið hefur verið fær til að frelsa barn tímabundið undan tálmanaofbeldi og framfylgja lögbundinni umgengni. Fyrirsjáanlegt er því, nái vilji Ögmundar og Höllu aðstoðarkonu hans fram, að lögheimilisforeldri verði gert enn auðveldara en áður að beita börn tálmanaofbeldi. Í frumvarpinu heldur ekki gert ráð fyrir að hægt verði að þvinga foreldri til að mæta við sáttameðferð í ágreiningsmálum og ekki er gert ráð fyrir að það hafi neinar afleiðingar fyrir foreldri mæti það ekki við sáttameðferðina sem Ögmundur og Halla vilja skylda foreldra til að fara í, frekar en að foreldri standi við sátt náist "sátt". Af þessu má sjá að það foreldri sem tekið hefur börnin til sín eftir skilnað og börnin því búa hjá hefur enga hagsmuni af því að mæta til sáttameðfeðar og hvað þá að standa við sátt náist "sátt", vilji það ekki t.d. hafa umgengni. Í 95% tilfella eru það mæður sem hafa börnin eftir skilnað og því ljóst að sáttameðferð mun engu skila, frekar en hún hefur gert í ágreiningsmálum t.d. um umgengni frá því að hún var lögfest fyrst rétt eftir aldamótin síðustu. Í dag uppfyllir Ísland ekki skyldur sínar samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og eru mannréttindabrot framin á börnum á Íslandi á hverjum degi sem og mörgum foreldrum og fjölskyldum Hið nýja frumvarp Ögmundar og Höllu aðstoðarkonu hans mun valda enn frekari mannréttindabrotum í þessum málaflokki. Á sama tíma heyrist Ögmundur vilja fara að skipta sér af hugsanlegum mannréttindabrotum í Azerbaijan þar sem Eurovison á að fara fram, væri ekki nær að Ögmundur liti sér nær? |